Vakning og myndataka

BryndisÞað voru 115 myndir á vélinni minni eftir gærkvöldið. Sem betur fer notaði ég vélina hennar Dagbjartar mikið þannig að ég þarf ekki að sjá um að fara yfir allar myndirnar sem ég tók. Dagbjört stal annars skónum hans Valdimars og Valdimar mínum skóm. Alan Dundes, lærimeistari Valdimars, hefði örugglega getað túlkað þetta á mjög skemmtilegan hátt. Skór tákna sko… Ég læt samt fagmennina um Freudískar túlkanir.

Ég snúsaði í hálftíma í morgun án þess að átta mig á því. Ég vaknaði nógu snemma til að troða í mig ristuðu brauði. Síðan var þessi eini tími sem ég fór í frekar gagnslaus. Þar að auki var Terry ekki við þegar ég fór að reyna að hitta hann. Hefði átt að sofa út.

Hér í færslunni má sjá Bryndísi vera að útskýra eitthvað með höndunum.

Verð síðan að benda á grein Matta um leikskólakristniboðann Sigurvin Jónsson.

Fram á miðvikudagsnótt

Ég man nú ekki hvort ég hafi nokkurn tímann verið svona lengi að á miðvikudagskvöldi.  Við nemendur í Rannsóknum í þjóðfræði fórum semsagt í mat til kennara okkar hans Valdimars.  Fengum fínan mat og síðan var spjallað frameftir.  Sum okkar fengu að máta ráðherrastól sem Valdimar er með hjá sér.  Við Dagbjört tókum síðan leigubíl að verða hálffimm, hún að fara að passa en ég að fara að sofa.  Ég vildi semsagt ekki vera keyrandi því bíllinn er á sumardekkjum.  Nú er komið að svefni en ég veit ekki alveg hvort hausinn er til í að slökkva á sér.