Fjögur búin, eitt eftir

Á miðvikudagsmorgun er mitt síðasta próf á önninni.  Eftir það mun ég versla, leggja mig, fara á Litlu Jól….

Munnlega hefðin er búin.  Ég hitti Rósu og Sigrúnu Hönnu á kaffistofu Árnagarðs eins og sést á myndinni í síðustu færslu.  Gísli Sig kom síðan til okkar og spjallaði við okkur.  Hann vissi ekki hvernig Parry dó.

Fyrri spurningin á prófinu var mjög fín en í seinni spurningunni hentuðu dæmin mér illa.  Þetta var samt þannig próf að ég hefði getað veðjað cirka hvað kæmi en lærði minna um allt í staðinn fyrir meira um fátt.

Ég er svoltið steiktur.  Þessi próftíð hefur verið meira en lítið erfið.  En gott að sjá fyrir endann á þessu.

Munnleg hefð og dauðdagi Parry

Próf í munnlegri hefð á eftir og mér finnst ég ekki vera vel undirbúinn.  Urf.  Vil fá 100% spurningu úr Singer of Tales.

Ég hef verið að velta einu fyrir mér og síðast þegar ég leitaði að svari þá fann ég ekki.  Hvernig dó Milman Parry?  Það er minnst á slysfarir og byssuskot á einum stað en það er ekki skýrt frekar.  Ég er forvitinn.  Kannski að ég spyrji Gísla þegar hann kemur í prófið.