Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Fimmtudagur, 7. febrúar 2008 klukkan 17:17

Vinsamlegast ekki hringja í mig

Rétt í þessu var verið að hringja í mig frá Röskvu. Það var einhver nýliði sem ég kannaðist ekki við og kannaðist ekki við mig sem lenti í þessu. Ég ákvað að vera harður við hann og yfirheyrði hann um hitt og þetta. Hann var ekki ánægður þegar ég útskýrði fyrir honum að ég væri fyrir löngu búinn að kjósa. Þarna fóru áttu mínútur sem hann hefði getað nýtt í að hringja í einhvern annan til að drífa á kjörstað rétt fyrir lokun.

Skilaboðin frá mér eru skýr: Ég vil ekki láta hringja í mig.

Fimmtudagur, 7. febrúar 2008 klukkan 13:08

Myndskilaboð - Elli kýs

Á leiðinni út hitti ég síðan Elías, fyrrverandi formann Stúdentaráðs sem var að kjósa. Hann strikaði ekki jafn marga út og ég.

Image007.jpg

Fimmtudagur, 7. febrúar 2008 klukkan 12:41

Myndskilaboð - Telma

Eftir að hafa farið á vikulega fundinn með Terry fór ég og verslaði Þorrablótsmiða. Sölukonan var afmælisbarnið sjálft hún Telma.

Image006.jpg

Ég hitti einmitt marga þjóðfræðinga í ferðinni, Ingibjörgu Hönnu, Jóhönnu, Júlíönu, Eydísi og Rósu. Mjög gaman.

Fimmtudagur, 7. febrúar 2008 klukkan 7:42

Utan hringiðunnar

Það er merkilegt hvaða þessar Stúdentaráðskosningar eru afskaplega lítið merkilegar þegar maður stendur fyrir utan þær. Þegar maður var inn í hringiðunni fannst manni alltaf vera að koma upp einhver mál sem gætu haft áhrif á kjósendur. Þegar maður horfir á þetta úr fjarlægð sér maður að þessi atriði skipta enga máli utan þess hóps sem stendur í baráttunni.

Annars væri gaman ef maður myndi sjá nærri jafn mikla orku í starfi Stúdentaráðs og er í starfi þessara fylkinga tveggja. En ætli það þreyti fólk ekki voðalega að þurfa að halda uppi þessu starfi.