Handsaumur

Í gegnum tíðina hef ég rembst við að sauma með saumavél með misgóðum árangri. Vegna sjónskerðingar minnar hefur það verið pínu flókið, ég þarf sérstakt stækkunargler til að geta þrætt nálina og svo var alltaf að festast í helvitis vélinni.

Fyrir nokkrum árum datt ég á myndbönd Bernedette Banner á youtube. Hún saumar fatnað fyrri alda t.d. frá Viktoríutímanum mikið til í höndum með nál og tvinna eins og fólk gerði fyrir tíma saumavélarinnar.

Ég hafði aðeins handsaumað áður til að stytta falda og taka af ermar (ég er mjög heitfeng)

Ég ákvað að slá til og byrjaði í haust að handsauma minn fyrsta kjól. Sniðið heitir Coco eftir Tilly and the buttons. Ég saumaði kjólinn úr svörtu hörefni. Ekki gékk það snuðrulaust fyrir sig, fyrst var hann of þröngur yfir mjaðmirnar svo ég bætti við tveim renningum í hliðunum. Þá varð hann of víður undir höndunum svo ég klippti fleyga úr renningunum til að fá hann til að passa. Næst þótti mér hálsmálið of vítt svo ég klippti fleyga að framan og aftan til að laga það. Nú er hann loksins eins og ég vil hafa hann. Ég kalla hann lærdóms kjólinn minn, ég lærði mjög mikið af honum og það var gaman að geta reddað sér.

Í janúar byrjaði ég á kjól nr. 2 úr sama sniði og gékk hann miklu betur. Ég breytti sniðinu aðeins til að koma í veg fyrir fyrri mistök, hann varð samt aðeins styttri en ég ætlaði að hafa hann. Ég gerði hann úr rauðu bómullar og teyjuefni. Ég var ekki eins hrifin af því og hörinu.

Í vor saumaði ég mér svo pils. Ég gerði sniðið eftir kjóla sniðinu en víkkaði það aðeins svo það væri pínu eins og hringpils. Efnið er mjög skrautlegt úr bómullar og teygjuefni. Ég held ég geri mér samt ekki fleiri pils er hrifnari af kjólum (ég geng í kjól á hverjum degi)

Næst langar mig að gera kjól frá thread+sprout sem ég sá í hlaðvarpi sem heitir Söndrugarður á youtube (ég mæli með því fyrir handavinnufólk)

Að handsauma hentar mér miklu betur en að nota vél. Ég get tekið hlutina nær mér til að sjá þá betur og svo losna ég við hávaðann frá saumavélinni sem ég þoli ekki og get hlustað á eitthvað skemmtilegra eins og hljóðbók eða tónlist.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *