
Ég kláraði þennan kjól um daginn. Sniðið heitir Coco eftir Tilly and the buttons. Ég þarf eitthvað að breyta hálsmálinu, ég hafði breytt því áður þrengt það aðeins. Mig langar að setja kraga á kjólinn er búin að sauma hann en hann passaði svo asnalega á núverandi hálsmál, kannski hef ég hann bara frístandandi með krækju.
Ég ætlaði að nota foundation dress eftir Thread+sprout en ég gat ekki prentað það út fyrr en ég fékk Hallgrím bróðir til að hjálpa mér. Skráin var þjöppuð og ég fattaði það ekki. Hef ekki afþjaopað skrá í svona 10-15 ár.
Svo að næsti kjóll verður foundation dress.