Ég…
- heiti Óli Gneisti Sóleyjarson.
- sé um hlaðvarpið Botninn.
- sé um hlaðvarpið Stories of Iceland.
- er einn af eigendum Kistan – Varpfélag slf.
- er fæddur þann 4. febrúar 1979 á Akureyri.
- er í sambúð (síðan 1999) með eiginkonu (2018) minni Eygló Traustadóttur.
- er pabbi Gunnsteins (síðan 17. júlí 2009).
- er pabbi Ingimars (síðan 8. mars 2013).
- bý í Bökkunum (síðan 2005).
- er bókasafns- og upplýsingafræðingur (2006).
- er með meistaragráðu í þjóðfræði (2009).
- er með diplómugráðu í opinberri stjórnsýslu (2012).
- er með meistaragráðu í hagnýtri menningarmiðlun (2012).
- bjó þrjá mánuði á Írlandi og stundaði nám við University College Cork (2007).
- gaf út spilin #Kommentakerfið (2015), Látbragð (2016), Hver myndi? (2018) og #Kommentakerfið II (2019)
- er virkur í margskonar félagsstarfi en hef þó dregið úr því hin seinni ár.
- stofnaði og sé um Rafbókavefinn (síðan 2011).
- hef skrifað greinar fyrir ritrýnd fræðirit.
- hef ritrýnt greinar fyrir fræðirit.
- reyki ekki.
- drekk ekki nema í miklum undantekningatilvikum.
- er Queenaðdáandi.
- er Týsaðdáandi.
- hef starfað sem forstöðumaður bókasafns hjá Iðnskólanum í Hafnarfirði og Húsaskóla, bókavörður/bókasafnsfræðingur hjá Borgarbókasafninu, Þjóðarbókhlöðunni og Árnastofnun, filmusafnsvörður, uppvaskari, kennari í Endurmenntun Háskóla Íslands, stundakennari í þjóðfræði við Háskóla Íslands, afgreiðslumaður í Glóey, afgreiðslu- og lagermaður í Rúmfatalagernum (mæli ekki með því), þræll á golfvelli (mæli alls ekki með því), sem lagermaður hjá Aðföngum, í Efnaverksmiðjunni Sjöfn og margt fleira misgáfulegt.