Aukafréttatími

Aukafréttatíminn þegar Ingibjörg valtar yfir Össur. Er þetta ekki óþarfi? Reyndar man ég að sýnt var beint þegar Davíð valtaði yfir Þorstein.

DD, FF og QotSA

Við skruppum að kaupa miða á Duran Duran, Foo Fighters og Queens of the Stone Age. Við mættum rétt hálftíma fyrir opnun og það dugði vel. Ég er mjög hrifinn af bæði Foo og Duran en ekkert sérstaklega hrifinn af Queens, samt allt í lagi. 10.000 krónur fyrir að vera á A-svæði á tveimur tónleikum er gott verð.