Listasýnishorn

Fór að ná mér í listasýnishorn í Harðviðarval. Það virðast vera nákvæmlega sömu tegundirnar til allsstaðar, hins vegar er tilboð þarna. Þessi listi er yfir meðallagi hár og breiður þannig að hann gæti virkað.

Ég verð glaður ef þessu listi virkar, þá er allt búðastúss í raun komið þó maður þurfi að mæta á staðinn og segja „66 metra af þessum gólflistum“.

Útkall í málninarvinnu

Á morgun fer málningarvinnan af stað þannig að mig vantar aðstoð. Sjálfur verð ég eiginlega frá morgni til kvölds í íbúðinni. Þeir sem nenna að mála eða hafa jafnvel gaman að því mega hringja í mig í dag, morgun eða sunnudag til að vita hvernig gengur. Þó fólk líti bara við í einn eða tvo klukkutíma þá er gagn að því.

Í augnablikinu lítur út fyrir að íbúðin verði að mestu tilbúin fyrir málningu á morgun. Í kvöld mun ég klára að pússa sparslið og mála yfir það. Það verður kannski eitthvað sem þarf að sparsla aftur í en vonandi lítið (ég er að nota sparsl sem þarna á sólarhring). Öll íbúðin ætti að vera málningarhæf á sunnudaginn og því ætti þetta að klárast þá.

Sigur rafmagnsamatörsins og aðrar sögur úr íbúðaveseni

Ég kom ljósunum í stofunni í lag áðan. Vandinn fólst fyrst og fremst í því að vírarnir í öðru ljósinu voru lausir (það voru fimm lausir vírar þar) og það þurfti að tengja þá rétt saman til að hitt ljósið virkaði. Þetta olli allskyns ruglingi og veseni. Þar að auki virðist svo vera að við það að ég fiktaði í rofanum þá hafi eitthvað dottið úr sambandi þar. Ég fékk reyndar upplýsingar um tengingarnar frá fyrrverandi yfirmanni mínum í Glóey.

Það var skrýtið að fara í Glóey eftir svona langan tíma. Bara Haukur og Hannes ennþá þarna, Keli og Kristín farin (og einnig ónefndi leiðindadurgurinn).

Ég reyndi að redda listum í dag, það mistókst. Ég tók hins vegar eiginlega endanlega ákvörðun um tenglana sem koma, þeir verða væntanlega allir tvöfaldir.

Ég keypti málningu í dag. Ákvað að fara til vinar míns til að fá góða ráðgjöf með málningarkaupunum en fékk góðan afslátt þar að auki. Þakklátur fyrir það.

Í kvöld fékk ég mér pizzu hjá tvíburunum á Pizza 67.

Ég var reyndar ekkert of duglegur í kvöld, búðarrápið í dag hafði farið með mig og þar að auki er ég illa farinn á hnjánum. Mín hné eru rauð.

Ég endaði kvöldið á að fara í sturtu í nýju íbúðinni. Það var notalegt.