Drykkjulæti minnihlutahópa

Þessi frétt á Mogganum inniheldur áhugavert orðalag.

Innanríkisráðherra Bretlands, Charles Clarke fagnaði árangrinum, hann sagði að þetta væri „töluverður árangur” en lofaði jafnframt að halda áfram á sömu braut. Nú er markmið stjórnvalda að: „…koma þeim skilaboðum til skila að við leyfum ekki drykkjulæti minnihlutahópa [leturbreyting mín] hafa áhrif á líf þeirra fjölmörgu sem njóta þess að drekka í hófi með vinum og fjölskyldumeðlimum,” sagði Clarke.

Þessa frétt er hægt að rangtúlka allsvakalega.

Þegar aðrir hringja í mig…

Í dag fékk ég símtal frá bláókunnugri manneskju sem var að spyrja mig um kosningarnar.  Nei, þetta er ekki dæmi um að Vaka og Röskva séu ekki að vanda sig með úthringingalistana sína.  Þarna var semsagt verið að spyrja mig hvar og hvenær maður ætti að kjósa.

Ég er annars yfirhöfuð lélegur plöggari en hér má kjósa.

Fimmtudagur, 9. febrúar, frá kl. 9:00 til 18:00:
Aðalbygging
Askja
Árnagarður
Eiberg
Hagi
Háskólabíó
Lögberg
Læknagarður
Oddi
Skógarhlíð
VRII
Þjóðarbókhlaða
 Háskólalistinn

Fjarkinn

  • Fjórar vinnur sem ég hef unnið um ævina: – Húsvörður – Uppvaskari – Afgreiðsla í rafmagnsvörubúð (perubúð) – Starfsmaður í efnaverksmiðju
  • Fjórar bækur sem ég gæti lesið aftur og aftur: – Small Gods eftir Terry Pratchett – Hitchhikers Guide to the Galaxy eftir Douglas Adams – Fandom of the Operator eftir Robert Rankin – American Gods eftir Neil Gaiman
  • Fjórir staðir sem ég hef búið á: – Akureyri – Reykjavík – Borgarnes (eitt sumar) – Hef reyndar búið á ótal stöðum innan Akureyrar og nokkrum í Reykjavík en annars er þetta komið.
  • Fjórir sjónvarpsþættir sem ég fíla: – Scrubs – Survivor – Simpsons – My name is Earl
  • Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum: – London – Borlänge – Kaupmannahöfn – Stokkhólmur
  • Fjórar síður sem ég skoða daglega:www.mbl.iswww.vantru.ismikkivefur.is/rss/rss.asp?user=gneistinnhlistinn.hi.is
  • Fernt matarkyns sem ég held uppá: – Ostur – Kók – Skúffuköku eins og ég bý til – Mexíkanski kjúklingurinn sem við Eygló búum stundum til
  • Fjórir staðir sem ég vildi heldur vera á núna: – Heima í rúminu (kannski að lesa) – Heima í baðinu (kannski að lesa) – Einhvers staðar með hóp góðra vina – Heima með Eygló
  • Fjórir bloggarar sem ég klukka:EyglóÁrmann JakobssonHafdísPez