Ég varð 27 ára um síðustu helgi. Ég var á Þorrablóti þegar miðnætti rann upp, þá hafði fólkið rétt lokið af að syngja fyrir mig. Þessi mynd er tekin 4 sekúndur yfir. Ég virðist vera gamall og bugaður.

Þegar var liðið á Kosningaandvökuna á fimmtudagskvöldið settumst við frammi, þar sem maður kemur inn á Stúdentakjallarann. Allt í einu heyrum við að eitt veggspjaldið er að detta, lítum upp og sjáum að það er Vökuspjaldið. Það losnaði hægt og rólega niður, féll síðan á gólfið. Ég sagði þá að þrátt fyrir að ég væri ekki trúaður á tákn þá væri ég tilbúinn að líta þetta jákvæðum augum.

Annars var þessi nótt mjög súr og soraleg.

Ég virðist hafa tekið um 20 myndir af Stefáni Boga á meðan hann var að koma sér að því að tilkynna kosningaúrslitin á fimmtudaginn. Hann þurfti að tefja heillengi því þeir sem fóru að tilkynna hinum fylkingunum þurftu að fara mikið lengra.