Sori

Sá þetta áðan upp í Hólagarði og þurfti að taka mynd af þessu.  Þetta er fyrir góða vinkonu mína sem er hrifin af svona stöffi:

Galið kerfi

Í Blaðinu í dag stendur að Háskólalistinn hafi náð inn einum manni í Stúdentaráð.  Þar er talað við Fjölni og væntanlega skilja flestir þetta þannig að hann sé eini fulltrúi okkar þar.  Kosningakerfið í SHÍ er náttúrulega þannig að þó að það sé sagt að maður hafi náð inn einum manni þá þýðir það í raun að tveir komust inn.  Síðan ruglar það fólk enn meira þegar Háskólaráðsliðarnir bætast við.  Ég er svoltið þreyttur á að þurfa að útskýra fyrir fólki hvernig þetta ruglkerfi virkar allt saman.  Ég veit að einstaklingskosningar nást líklega ekki í gegn á næstunni en gætum við breytt núverandi kerfi þannig að það verði gegnsætt og auðskiljanlegt?

Áhugaverður dagur

Áhugaverður dagur í alla staði. Skiptafundurinn var áhugaverður, í framtíðinni get ég sagt að ég hafi verið viðstaddur sameiningu Vöskvu. Skemmtilegt spjall á Stúdentakjallaranum eftir það.

Ég fór næst niður í bæ að kaupa mér bol fyrir Háskólakynninguna á sunnudaginn. Vertu rolla. Kíkti líka í 2001. Keypti Being There og spjallaði aðeins við Sigga um möguleikann á að Queen+Paul Rodgers kæmu til landsins. Ég rauf samtalið þegar ég áttaði mig á hve áliðið væri og keyrði geðveikt fast upp á Höfða til að ná í Queen dótið sem ég var að fá í hálfgildings afmælisgjöf.

Trommukjuðar, Brian May sixpence, tónleikaskrá, Queen tour ’75 bolur (eftirprentun, ekki orginal), Return of the Champions dvd og sérstök afmælisútgáfa af A Night at the Opera á vínil. Gleði Gleði.

Í kvöld fórum við síðan í bókmenntarútuferð þar sem keyrt var um Reykjavík, ljóð og bókakaflar lesnir. Óskar Árni var að sjálfssögðu bestur frá mínum sjónarhól.

Ferðin tók lengri tíma en ætlað var og við hoppuðum út áður en ferðinni var lokið við Öskju. Klukkan var nefnilega tíu og við þurftum að mæta á tónleika akkúrat þá út í Háskólabíó. Við hlupum uppeftir og náðum inn um leið og tónlistin byrjaði. Við gengum að sætunum okkar og þá höfðu einhverjir tekið þau traustataki! Og það voru stjörnufræðitvíburarnir. Við rákum þá burt en þeim var reyndar vorkunn þar sem einhver hafði víst tekið þeirra sæti.

War of the Worlds var flott. Gaman að þessu. Þegar enn var verið að klappa þá hringdi síminn. Það var Elli. Ég leyfði honum að hlusta á klappið en talaði ekkert við hann. Ég hringdi síðan í hann á leiðinni út og þá var víst Háskólalistapartí í gangi. Við fórum þangað og spjölluðum og trölluðum. Þegar staðnum var lokað þá skutlaði ég Ásgeiri Heim en við fórum með Ella á BSÍ. Við ræddum hitt og þetta. Það er að ljúka áhugaverðu ári. Ég verð líklega ekki jafn fastur gestur á skrifstofu Stúdentaráðs og ég hef verið undanfarið ár. Hvert ég þá farið að ræða þjóðmálin? Ég bara spyr.