Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Fimmtudagur, 6. apríl 2006 klukkan 23:58

Upplestur

Við Eygló fórum á upplestur hjá Andra Snæ í Sólheimasafni áðan. Það var bara gaman
Andri Snær

Fimmtudagur, 6. apríl 2006 klukkan 21:09

Úrslitin

Jæja, MA tók þetta nokkuð vandlega.  Til hamingju með það.  Voðalega er leiðinlegt að heyra lýsingarnar á verðlaununum.

Fimmtudagur, 6. apríl 2006 klukkan 0:56

Kosin

Við Sigrún vorum í kvöld kosin ritstjórar Slæðings sem er ágætt miðað við að blaðið kemur út næsta föstudag.  Planið er reyndar að gefa út tvö blöð í viðbót undir okkar ritstjórn.  Ég hlakka til að gefa út næsta blað.  Við vitum þá nákvæmlega hvað við erum að gera.
Sigrún er líka orðin ritari Þjóðbrókar, Eggert áfram gjaldkeri og Jóhanna er núna formaður.