Gneistinn

Dagbók og handahófskennt þvaður
Föstudagur, 2. júní 2006 klukkan 23:45

Halldór að hætta?

Ég styð það að Finnur taki við sem formaður Framsóknarflokksins, góð hugmynd.  Snilld alveg.

Föstudagur, 2. júní 2006 klukkan 16:27

Ekki kominn á toppinn

Ármann hefur ekki ennþá lyft mér í efstu hæðir þrátt fyrir að ég hafi bent á hver sé í öðru sæti aldurskeppni Biblíunnar.  Er hann ekki að lesa mig?

Föstudagur, 2. júní 2006 klukkan 16:04

Emilíana…

Það er til upptaka af tónleikum með Emilíönu þann 23. nóvember árið 1995.  Af hverju hefur þetta aldrei verið sýnt eða gefið út?  Endurútgáfa af Krúsídúllu með þessu sem aukaefni á dvd væri til að mynda stórgóð hugmynd.

Föstudagur, 2. júní 2006 klukkan 12:26

Í öðru sæti…

Og allir dagar Jareds voru níu hundruð sextíu og tvö ár, þá andaðist hann.