Dawkins á Dawkins

DawkinsÉg er gríðarlega ánægður með þessa mynd. Til að koma í veg fyrir spurningar um hvað er merkilegt við hana þá bendi ég á að þarna situr Dawkins, langaftast í salnum og horfir á sjálfan sig á tjaldinu. Mjög gaman að ná andlitinu þar.

Mér sýndist reyndar hann aðallega vera að fylgjast með áhorfendum (sem sjást því miður ekki nógu vel á myndinni, það voru allavega hátt í hundrað manns þarna þegar á sýningunni stóð).

Ég endurtek það sem ég sagði í gær. Dawkins er svo indæll maður og svo kammó. Hann hefur áhuga á öllum og hlustar á álit þeirra.

Dawkins í Kastljósinu (hárið hans svoltið eftir sig vegna Bláa Lóns ferðarinnar).
Dawkins á NFS.

  1. Áhugavert, hvar kemst maður í þessa mynd hans sem var sýnt brot úr í Kastljósi?

  2. Viðtalið í Kastjósi var mjög áhugvert. Verður þessi mynd sýnd í sjónvarpinu?

  3. Það hefur verið reynt að fá Sjónvarpið til að kaupa sýningarréttinn en undirtektirnar hafa verið í dræmara lagi. Kannski það mundi hjálpa ef fólk tæki sig til og skrifaði Sjónvarpinu og óskaði eftir sýningu á þessu.

  4. Já, það er líkast til rétt hjá þér Óli. Ég er enn í hálfgerðri vímu eftir fyrirlesturinn hans Dawkins. Hann er einmitt ótrúlega kammó, sat á móti mér í hádeginu og spjallaði. Hress gaur, stjörnur í augum. Og já, takk æðislega fyrir að redda mér með bókina :)

Leave a Comment

NOTE - You can use these HTML tags and attributes:
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>