Hellur og fundir

Rétt eftir klukkan þrjú í dag fann ég fyrir því að ég var að losna við hellurnar.  Vika síðan ég flaug heim.  Ég áttaði mig ekki á því að ég væri ennþá með hellur en þetta útskýrir aðeins hvernig ég hef verið í höfðinu undanfarið.

En klukkan fjögur hitti ég Jóhönnu og spjallaði um BA-verkefnið.  Eins og alltaf þegar ég spjalla við hana þá virðist þetta allt vera minnsta málið.  Rölti síðan yfir til Terry og spurði hann hvort að póstkortið hefði komið.  Spjallaði snöggt við hann.

Fór síðan á bókhlöðuna og tók mér eina bók.  Afgreiddi dáltið af viðskiptavinum þegar mikið var að gera hjá Sigrúnu.  Spjallaði og slúðraði.  Tilkynnti lokun safnsins dáltið eftir að flestir voru farnir út.  Tel mig nokkuð góðan í kallkerfinu.

BA-verkefnisfundur…

Á eftir fer ég á BA-verkefnisfund.  Get ekki sagt að ég sé vel undirbúinn.  Helgin leið hjá í veikindamóðu, náði að gera einhverjar 10 færslur sem væri fínt ef ég hefði svona 20 helgar til að klára verkefnið.  En í næstu viku stefni ég á að búa á Bókhlöðunni frá svona 10-17.  Það ætti að duga.  Ég held að ég geti yfirleitt gert 10 færslur á góðum klukkutíma.  Síðan koma leiðinlegu færslurnar sem taka mun lengri tíma.  En stefnan er semsé að klára alla skráningarvinnu í næstu viku.  Síðan er bara að fara yfir allt og skrifa inngangskaflana, setja saman skrárnar og allt hitt.  Verð væntanlega daufur fyrstu vikurnar í skólanum.  Síðan hress og kátur.  Og að lokum bókasafns- og upplýsingafræðingur.