Það er meiri gleði í dag. Ég fékk 8,5 fyrir Eigindlegar rannsóknaraðferðir. Reyndar voru fleiri með 9 en það skekkir hins vegar tölfræðina að flestir skráðu sig úr kúrsinum. Miðað við að ég var lengi að koma mér af stað í kúrsinum (Stúdentaráðskosningar og umsóknarvesen) og skilaði eiginlega öllu nema lokaskýrslunni of seint þá get ég verið ánægður. Þetta lækkaði meðaleinkunn mína örlítið, hún er semsagt rétt rúmlega 8,5 núna. Þessi tala breytist líklega ekki mikið þar sem flestir kúrsarnir sem ég á eftir að taka verða í erlendum skólum og þá skilst mér að ég fái bara „Staðið“. Þar að auki held ég að skorin ætli að taka líka upp Staðið/Fallið fyrir MA-ritgerðir. Hákarlinn gæti hins vegar breytt þessu eitthvað.
Day: 29. maí, 2007
Ágætur í ensku
Jæja, ég er ágætur í ensku. Ég fékk útúr TOEFL prófinu. Ég skora hátt í öllu, annað hvort 29 eða 30 af 30 mögulegum nema í talmálinu þar sem ég fékk bara 26 af 30. Ég bjóst við að það hefði komið verst út enda leið mér frekar kjánalega að tala svona út í loftið í prófinu.
Samt er galli á gjöf Njarðar. Ég hef ekkert gagn að þessu. Cork biður ekki um TOEFL próf. Ég skráði mig í prófið um viku áður en kom í ljós að samningurinn milli Nýfundnalands og H.Í. hefði ekki verið endurnýjaður. Þar fóru um tíu þúsund krónur fyrir lítið. En ég get allavega bloggað um þetta.
Í Odda í sumar
Ég er mættur í Odda í sumarvinnuna mína. Þeir sem eiga leið um svæðið í sumar ættu endilega að athuga hvort að ég er þar.
