Húmorsleysi hjá Metallica?

Metallica tók Stone Cold Crazy eftir Queen, lagið er á Garage Inc. Eitt sem hefur alltaf farið svoltið í mig þegar ég hlusta á lagið.

Upphaflegi textinn er svona:
Walking down the street, shooting people that I meet
With my rubber tommy water gun
Here come the deputy, he’s gonna come and getta me
I gotta get me get up and run

en verður svona með Metallica:
Walking down the street, shooting people that I meet,
Fully loaded Tommy gun.

Here come the deputy, try fucking getting me,
Gotta fucking get up and run.

Metallica finnst semsagt ekki nógu gott að segja rubber tommy water gun heldur verður að fara “svölu” leiðina og breyta þessu í fully loaded tommy gun. Mér finnst þetta bera vott um húmorsleysi hjá Metallica, sérstaklega þegar þeir þurfa að bæta við nokkrum “fucking” í textann.

Kannski er það bara að fáar hljómsveitir komast upp með svona, hvaða önnur hljómsveit en Queen hefði endað One Vision á “Just gimme gimme gimme gimme Fried chicken”?