Síðan er ekki ennþá komin á leiðarenda, 6-20 tímar þar til fólk fær aðgang að http://kaninka.net á ný. Helsta fréttin er náttúrulega að Eygló er komin hingað. MT var uppfært í 2.64 í leiðinni og ýmislegt verður líklega þægilegra en áður, hraðinn virðist meiri. Jamm. Tölvupósturinn er samt ekki ennþá að komast til skila, efast svosem um að nokkur hafi haft nokkuð mikilvægt að segja mér um þessa helgi.
Fyrir utan að laga til síðuna hennar Eyglóar þá hef ég verið að laga til mína eigin síðu. Ef þið skoðið vel þá sjáið þið muninn, athugaemdirnar og trackbackið hefur verið sameinað í eitt, dagsetningarnar eru loksins komnar í lag (það var reyndar svo auðvelt að mig langaði að kýla sjálfan mig). Steinunn og Eygló ættu að birtast á Rasslistanum hér til hliðar þegar Kaninkan verður komin á fullt.