Ég tók mig áðan til og færði öll glösin úr hægri skápnum yfir í vinstri skápinn, diskarnir fóru þar af leiðandi úr vinstri skápnum yfir í hægri skápinn. Þetta var búið að bögga mig síðan að Eygló raðaði í skápana. Það er engin rökræn ástæða fyrir þessu. Sumt passar bara og annað ekki.
Eitt sem mér finnst stórundarlegt er að það er til rétt og röng leið til að leggja á borð. Ég held að flestir taki því sem gefnu að þessi “rétta” aðferð sé notuð og sjái bara ekkert að því, hnífar hér, gaflar þar. Ég hvet fólk hér með til að leggja á borðið einsog því sjálfu finnst þægilegast, þetta er mikilvægt á sinn litla hátt, anarkismi við eldhúsborðið.