Ég var búinn að ákveða að skrifa færslu með þessu nafni í tilefni þess að ég minntist á Hildi hér áðan. Ég ætlaði að minnast á það að Balli fyrrverandi bekkjarfélagi minn býr í sama húsi og ég, við höfum heilsast svona tvisvar en ég get farið nánar út í þetta.
Ég var að skoða að hverju fólk var að leita að þegar það kemur inn á síðuna mína, til þess að sjá það verð ég að fara inn Google og þá sá ég að leitarorðið var „Billi“ og ég sá einnig að Google benti á bloggsíðu sem einhver Billi var að blogga á. Ég kíkti þangað og sá að þetta var vissulega sá Billi sem ég var að tala um, fyrrverandi bekkjarfélagi minn Billi. En það voru aðrir að skrifa þarna, nokkrir fyrrverandi bekkjarfélagar, þar á meðal Balli og Balli er meiraðsegja með eigin bloggsíðu, merkilegt.