Aftur um skólafélaga

Á rölti um Netið í gær fann ég einn bekkjarfélaga í viðbót sem bloggar og einn sem var með mér í MA, reyndar eru þeir á sömu bloggsíðunni. Þetta eru Sössi og Halli.

Sössi var með mér í fyrsta bekk í MA og vorum við ásamt Balla, sem nefndur er hér að neðan, og fjórða náunganum (Guðna) hluti af sömu klíkunni. Ég datt útúr þessu þegar ég fór lenti ekki í sama bekk og þeir þrír þegar við fórum í annan bekk, það var ægilegur bömmer.

Við Halli þekktumst aðallega af því við vorum í sama félagi, nördafélaginu HÁMA. Heimurinn er hinsvegar svo lítill að Halli er frá Vopnafirði einsog Eygló, meiraðsegja af næsta bæ (sem er veðurathugunarstöð og því oft nefndur í veðurfréttum) og æskuvinur Svenna bróður Eyglóar. Man þegar við Eygló skruppum til að versla við hann í pípulagnabúðinni sem hann vann í. Það var ótrúlega fyndið að sjá svipinn á honum, það kom honum svo rosalega mikið á óvart að sjá okkur tvö saman. Heimurinn er einfaldlega svona lítill. En Svenna er hér með bent á bloggsíðuna hans Halla.

Ég rakst reyndar á einhverjar smávægilegar upplýsingar um fleiri fyrrverandi bekkjarfélaga í gær, merkilegt hvað þetta fólk dreifist.