Einkunn í Interneti

Þá er einkunn númer 2 komin í hús, hún er fyrir áfangann Internet fyrir Bókasafns- og upplýsingafræðinema. Ég fékk 8,5 og ég játa að ég hefði viljað fá hærri einkunn, ég hefði líklega getað lagt mig meira fram en þessi kúrs fór svoltið í neðsta sætið á forgangslistanum af því það var alltaf ljóst að ég fengi góða einkunn fyrir hann. Það er best að taka fram að 8,5 var hæsta einkunn sem var gefin. Þetta var samt áhugavert og mér fannst Anne Clyde góður kennari.