Einn á MSN

Ég er einn á MSN, það þykir mér grunsamlegt. Ég held að það hafi aldrei gerst áður. Reyndar er ég ekki einn af þeim sem notar MSN til að kynnast algerlega ókunnugu fólki heldur bara til að tala við þá sem ég þekki, það eru semsagt ekki óhóflega margir þarna í allt. En Særún María er komin inn núna, kannski að hún líti við um helgina til að ná í líffræðiglósurnar sínar, annars þá þarf ég að fara í heimsókn til hennar.