Hvað kostar Bless?

Í dag fór ég í búðir með Hallgrími. Við fórum á vanalega staði, Videosafnarinn lokaður. Keyptum ekkert í Diskabúð Valda, Japis eða Skífunni. Reyndar var áhugavert að ég sá plötu með hljómsveitinni Bless í Diskabúð Valda, nú var Biggi í þessari hljómsveit (einsog svo mörgum öðrum) ásamt Dr. Gunna þannig að ég hefði keypt hana ef hún hefði verið á smápening en svo var ekki. Platan kostaði fimm þúsund kall. Mig grunar að það hjálpi að Björk var með á þessari plötu. Biggi var ekki að trúa þessu, giskaði að hún kostaði 99 krónur, ég held að þetta sé ekki í uppáhaldi hjá honum sjálfum. Reyndar voru Sálarplöturnar með honum ódýrari, ægilega var hann svalur á þeim tíma.

Ég fór síðan í Safnarabúðina og þar fann ég Pílu Pínu og fékk á 200 krónur því hún var rispuð öðru megin. Ég spurði hvað hitt og þetta kostaði, Welcome to the Pleasuredome með Frankie goes to Hollywood kostaði 1500 krónur sem mér finnst of mikið fyrir plötu með hljómsveit sem enginn er hrifinn af lengur (nema ég). Þegar ég ætlaði að fara sá ég síðan A Night at the Opera liggja efst á bunka þarna, greinilegt að einhver hefur verið að fletta þarna og skilið hana eftir efst handa mér. Hún var á þúsund sem mér fannst í lagi, aðallega reyndar vegna þess að hún virðist órispuð og mig langar að heyra þetta einsog þetta var á plötunni upphaflega.

Við fórum líka í 2001, Steve Martin var ekki kominn en ég fann aðra mynd með honum þarna, Dead Men don’t wear Plaid, á hana reyndar á video en það skiptir ekki öllu. Keypti líka Trading Places með Eddie Murphie og Dan Aykroyd. Báðar ódýrar, hann er komið með nokkuð gott úrval af svona ódýrum myndum hann Siggi.

Ég skutlaði Hallgrími að lokum í SPRON og bauð Helgu frænku að koma með Árnýju og Hjörvari í kaffi á morgun.

Svo fór ég heim.

5 thoughts on “Hvað kostar Bless?”

  1. Hvað meinarðu með að enginn hafi gaman af FGTH nema þú?
    Komdu og kíktu á vínylinn hjá mér.

  2. Úhh, spennó. Valdi hefur annars úrval af G’n’R myndaplötum (þar sem myndir er á plötunni sjálfri).

Lokað er á athugasemdir.