Aðfaranótt sunnudags dreymdi mig að einhver tannlæknir hefði látið upp í mig spangir án þess að þörf væri á því. Ég var ekki ánægður og íhugaði leiðir til að losa mig við þær, meðal annars var ég að velta því fyrir mér að nota vírklippur. Að lokum ákvað ég að tala við Teit sem sá um tannréttingarnar mínar á sínum tíma, ég vaknaði þó áður en til aðgerða kom. Í gær hringdi Mangi sonur hans Teits síðan í mig, *það getur bara ekki verið tilviljun*.
Annars þá var söguþráðurinn í þessum draum stolin úr Spin City þætti.