Lou Reed eða hvað?

Nei, ég fór ekki á Lou Reed í gær. Ég var frekar slappur í gær og þar af leiðandi komum við miðunum yfir á Svenna og Hrönn, ég veit ekki hvað þeim finnst. Góð ákvörðun að sleppa tónleikunum því að um áttaleytið í gærkvöldi þá ældi ég upp öllu sem var í maganum mínum, það voru aðallega magasýrur, það er vont að æla magasýrum og ég hef gert aðeins of mikið af því undanfarið.

Fólk virðist hafa verið mishrifið af tónleikunum, sumir alveg í hæstu hæðum en aðrir virðast hafa verið í svipuðu stuði og ég var í yfir salerninu í gær. Ég hefði viljað heyra The Raven því ég elska hrafninn.

Once upon a midnight dreary,
while I pondered weak and weary

 … og svo framvegis. Ég held ég kunni ennþá fyrsta og síðasta erindið utan af, sem er merkilegt þar sem ég kann almennt ekki ljóð og er almennt ekkert sérstaklega hrifinn af ljóðum. Ég féll fyrir þessu ljóði þegar Hafdís systir mín var í MA að læra um það, tók ljósrit af þessu og las aftur og aftur.

Hafdís spyr hvort ég vilji skenkinn okkar gamla. Ég veit það ekki, er að melta það.

Annars þá hef ég ekki ælt síðan í gærkvöldi sem er hugsanlega met fyrir síðustu daga, ég fékk Eldsmiðjupizzu í rétt fyrir klukkan tíu í gærkvöldi og hún fór vel í magann á mér. Hóstinn er að skána held ég, maður er meiraðsegja að spá í að fara út og fá sér ferskt loft en það kemur bara í ljós.