Gervibrjóstaóeirðirnar

Mikið var að einhver spurði. Óeirðir er kannski full sterkt orð en mig minnir að fyrirsögnin hjá Sun hafi verið eitthvað á þessa leið: „Freddies falsies cause a riot„. Ég er samt ekki alveg nákvæmlega viss um orðalagið.

Við þurfum að byrja á því að rifja upp myndbandið við I Want to Break Free. Þetta er eitthvað skemmtilegasta tónlistarmyndband allra tíma, þar koma allir meðlimir Queen fram í kvenmannsgervum, öll uppsetningin á þessu minnir víst mikið á elstu sápuóperu Bretlands Coronation Street. Freddie kom þarna fram í bleikri peysu og svörtu leðurpilsi og með yfirvaraskegg, yfirvaraskeggið er samt horfið seinna í ballethluta myndbandsins. Freddie fór síðan í þetta gervi á tónleikaferðalaginu sem fylgdi í kjölfarið þegar hann söng I Want to Break Free.

Árið 1985 var Queen aðalhljómsveitin á Rock in Rio, þar komu þeir fram fyrir framan 250.000 manns. Þegar kom að I Want to Break Free þá fór Freddie í kvenmannsgervi sitt og kom fram á sviðið, áhorfendur tóku því ekki vel og byrjuðu að kasta rusli á sviðið. Freddie tók þessu merkilega vel, reif af sér gervibrjóstin og hélt áfram að syngja, áhorfendur jöfnuðu sig. Eftir tónleikana fréttu meðlimir Queen af því að í Suður-Ameríku þá var litið á I Want to Break Free sem frelsissöng. Þar að auki höfðu aðdáendurnir fæstir séð myndbandið og skyldu alls ekki hvers vegna það var verið að gera lítið úr þessum óð til frelsisins.

Þetta var ekki í eina skiptið sem gervibrjóstin hans Freddie voru til vandræða, vörubílarnir sem fluttu græjur hljómsveitarinnar töfðust eitt sinn í marga klukkutíma í tollskoðun af því tollarinn trúði ekki hve mörg aukasett af brjóstum Freddie þurfti (man ekki nákvæmlega hve mörg þau voru en tugir er varlegt mat).