Bardagi við Árna Bergmann

Ég lenti í átökum við Árna Bergmann áðan, í Bónus. Ég var þarna að versla í mestu rólegheitum, var að ná í síðustu vörurnar þegar ég sá að ein biðröðin var styttri en hinar. Ég ákvað að reyna að ná þarna en ég var ekki sá eini sem sá tækifærið, Árni Bergmann var í næstu röð við og rauk á stað þegar ég var að fara framhjá honum. Ég jók ferðina til að ná þangað á undan en þá þrengdi Árni svo að mér að innkaupakarfan mín rakst í saklausa konu sem var þarna á ferðinni, þegar ég ætlaði að losa mig úr klípunni þá datt einn núðlupakki úr körfunni og ég vissi að bardaginn var tapaður, Árna náði í röðina.

Ég taldi mig sigraðan af gamla manninum og ákvað að fara í röðina sem hann var í áður. En allt í einu sá ég að Árni hafði metið stöðuna vitlaust! Gamla röðin hans var í raun fljótlegri leið útúr búðinni! Ég tók þessu rólega og þegar ég var búinn að borga þá var ekki einu sinni komið að Árna á hinum kassanum. Ég fagnaði sigri og byrjaði að raða vörunum mínum í poka, ég vonaðist til þess að Árni myndi líta til mín svo ég gæti glott framan í hann en hann virtist ekki vilja sjá mig hrósa sigri. Þegar ég yfirgaf búðina var Árni ekki einu sinni farinn að láta vörur sínar í poka, sigurinn var minn.