Það var hasar á fundi Menntamálanefndar áðan, reyndar nær engar deilur. Við vorum semsagt að fjalla um skrásetningu í kúrsa og það var hiti í fólki. Það virðist margt skrýtið við þetta skrásetningarmál allt saman, fólk á að borga 6750 krónur fyrir að hafa ekki skráð sig á réttum tíma þó fresturinn hafi nær ekkert verið kynntur fyrir fólki.
Ég sjálfur lenti í því að engar upplýsingar voru í þessari netkennsluskrá um þjóðfræði sem aukagrein og það var bara heppni að ég komst að því að Hjátrú yrði kennd á næstu önn. Kerfið reyndi líka að skrá mig í einhverja kúrsa sem tengdust námi mínu ekkert. Þar að auki hrundi Uglan víst á tímabili.
Eftir fundinn gerðist ég einkaritari formanns Stúdentaráðs.
