Hefði átt að láta vaða…

Keyrt aftan á mig áðan. Var á ljósunum Njarðargata/Hringbraut. Ætlaði að ná ljósunum en sá að það yrði rautt áður en ég kæmist. Ég bremsaði frekar snöggt en bíllinn fyrir aftan mig náði ekki að hætta við. Ég hlýt að hafa verið á kúplingunni því bíllinn flaug áfram um svona 4 metra en skemmdist voða lítið. Hinn bíllinn skemmdist meira. Þessu verður öllu redda í góðu.

Fólk er annars indælt, hvorugur okkar var með tjónaskýrslu þannig að ég bankaði á bíl sem var þarna á ljósum og við fengum gefins frá þeim. Takk fyrir það.

Í gær fór ég einn á American Style í Kópavogi. Nennti ekki heim að borða til þess eins að fara aftur til baka í íbúðina. Ég hitti þar Jósa og Braga. Við sátum saman og spjölluðum, DV var með umfjöllun um Jesú þannig að talið barst að honum. Alltaf gaman.

Eftir matinn vorum við fyrir utan að spalla þegar við heyrðum bíla skella saman. Þetta var þarna rétt hjá þannig að við fórum að sjá hvort við gætum hjálpað eitthvað. Það var allt í lagi með fólkið þó þrír bílar hefðu lent saman. Fremst var fólksbíll sem var lítið skemmdur, síðan jeppi sem var lítið skemmdur að framan en aftast var fólksbíll sem var inn í jeppanum. Stuðarinn úr fólksbílnum var ofan á dekkjum jeppans. Mjög spes.

Ég benti ökumanninum aftasta að láta hazardljós á, Bragi hringdi í lögguna og við fórum síðan.

Nú sit ég í Eggertsgötunni og reyni að róa taugarnar. Spáið í því að ég hefði geta skaddast ef ég notfærði mér ekki hið einfalda og góða öryggistæki sem beltin eru.