Það var verið að hringja í mig frá verkstæðinu sem fartölvan mín er á og mér sagt að geisladrifið mitt væri ónýtt og það væri verið að panta nýtt. Þetta er það sama og þeir sögðu mér þegar þeir hringdu fyrir viku. Það var ekkert nýtt að frétta, þeir virðast bara hafa ætlað að vekja upp vonir mínar með því að hringja í mig.