Vaka vill ræða einstaklingskosningar

Það kemur nokkuð á óvart að í síðasta tölublaði Vakandi er því lýst yfir að Vaka vilji ræða einstaklingskosningar.  Við hjá Háskólalistanum tökum þessum umleitunum Vöku vel og höfum nú birt grein þar sem við bjóðum þeim að halda með okkur málþing um kosningakerfið.  Röskva fær að sjálfssögðu líka boð um að vera með.  Það verður gaman að sjá hvað kemur út úr þessu.