Kynning og þjóðir

Í dag kynnti ég þjóðfræði.  Á sama tíma í fyrra og hittifyrra þá kynnti ég bókasafns- og upplýsingafræði.  Ég virðist líta á mig sem afskaplega góðan fulltrúa náms míns.  Það var bara gaman á þessari kynningu.  Ég byrjaði sitjandi út í horni en þar sem hópur af stjórnmálafræðikennurum blokkeraði leið væntanlegra þjóðfræðinema að borði okkar þá ákvað ég að koma mér fyrir hjá borði bókasafns- og upplýsingafræðinnar sem var með besta staðinn.  Þar tróð ég bæklingum að öllum.  Ef fólk vildi afþakka bækling sagði ég bara „jú víst“, „af hverju ekki“ eða einfaldlega „þú veist þú vilt það“.  Á meðan ég stóð þarna var ég í góðum félagsskap stærðfræðinema sem flestir héldu að væri þjóðfræðinemi líka.  Mín Lofthænutala er 20.

Ég fór síðan á Þjóðahátíð.  Þjóðfræðinemar höfðu séð um íslenska básinn og það var vel gert þó að fáar hugmyndir mínar hafi verið notaðar.  Í gær var ég með í að setja upp básinn og það endaði einhvern veginn út í fjöru þar sem Rósa formaður fékk á sig væna gusu.  Það þótti mér fyndið.