Á föstudaginn fórum við Eygló á bókamarkað og keyptum nokkrar bækur.
- Við fengum Ísland í aldanna rás á 5000 kall.
- Eygló keypti Zoëgaættarbókina á 3000 krónur.
- Smáglæpir og morð fengum við á 500, þar er saga eftir Hjörvar sem ég á alltaf eftir að lesa.
- Lakkrísgerðin eftir Óskar Árna kostaði 700.
- Við útganginn tók ég síðan útlitsgallað eintak af Sögu Tímans eftir Stephen Hawking á þúsund krónur.
Ágætis ferð, finnst samt einsog eitthvað sé að gleymast… jú, Eygló keypti eitthvað fleira.