Ég fór áðan á málþing í bókasafns- og upplýsingafræði. Þar voru nemendur að kynna verkefni sín. Margt áhugavert á seyði og ég verð hissa ef sum þeirra vekja ekki töluverða athygli þegar þau verða kláruð. Reyndar töpuðu verkefnin sem voru í seinnihluta málþingsins á því að þetta var töluvert langt. En þetta sýnir vel hve mikil gróska er í greininni eftir að MLIS námið fór af stað. Varðandi kynjahlutfall þá voru 3 karlmenn og 6 konur að kynna.
Það sást reyndar vel á kynningunum að fókusinn er töluvert mikið á skjalastjórnarhlutann. Þar eru hlutirnir að gerast núna.