Vísindaferð til Hafnarfjarðar

Vísindaferð til Hafnarfjarðar í dag.  Fórum á Byggðasafnið og Fjörugarðinn (sem er hluti Fjörukránnar).  Reyndar átti á tímabili að fara á A Hansen.  Tólf mínútum áður en Strætóinn minn átti að koma þá kíkti ég á matseðilinn hjá A Hansen og fannst verðið fullhátt þannig að ég ristaði brauð og borðaði á engri stundu.

Ég var reyndar ekki í miklu stuði fyrir safnskoðun þannig að ég fór með fyrsta hóp yfir á Fjörugarðinn.  Ég, Eggert, Dagbjört, Júlíana og Jón Kr. ákváðum að borða þarna.  Marie bættist síðan í hópinn og við vorum þarna saman utan við aðalhópinn.  Þegar við fórum niður í bæ enduðum við sex aftur saman ein á Kaffibrennslunni og var það bara gaman.  Þegar við komum þarna var enginn öskubakki á því svæði sem við settumst á en síðan var hlaðið öskubökkum allt í kring og það kom reykjandi fólk á næsta borð.  Pirrpirr.