Eins og ný

Ég er með tölvu sem virkar og það er gott.  Reyndar vantar eiginlega allt í tölvuna en það kemur.  Það var semsagt orðið þannig að í hvert skipti sem ég reyndi að spila lög þá hikstaði hún.  Þegar ég kveikti á henni tók það heilllangan tíma og endaði á ástæðulausu villutjékki.  Síðan virtist eitthvað rugl taka gríðarlegt vinnsluminni.  Þetta er allt annað líf og notalegt.