Fjögur búin, eitt eftir

Á miðvikudagsmorgun er mitt síðasta próf á önninni.  Eftir það mun ég versla, leggja mig, fara á Litlu Jól….

Munnlega hefðin er búin.  Ég hitti Rósu og Sigrúnu Hönnu á kaffistofu Árnagarðs eins og sést á myndinni í síðustu færslu.  Gísli Sig kom síðan til okkar og spjallaði við okkur.  Hann vissi ekki hvernig Parry dó.

Fyrri spurningin á prófinu var mjög fín en í seinni spurningunni hentuðu dæmin mér illa.  Þetta var samt þannig próf að ég hefði getað veðjað cirka hvað kæmi en lærði minna um allt í staðinn fyrir meira um fátt.

Ég er svoltið steiktur.  Þessi próftíð hefur verið meira en lítið erfið.  En gott að sjá fyrir endann á þessu.