Jólakveðjur

Í ár sendi ég engin jólakort. Það er bömmer en ég ákvað að ég þyrfti að gefa mér frí eftir prófin til að jafna mig á öllu stressinu. Ég ætlaði hins vegar að senda jólakveðju í útvarpið en ég var of seinn. Sem er bömmer.

Ég vona því að allir sem ég þekki kíki inn á bloggið mitt til þess að lesa jólakveðju mína (þið sem vitið af fólki sem les mig yfirleitt ekki megið láta það vita af kveðjunni).

joli.jpgÉg óska fjölskyldu minni, vinum mínum, kunningjum, skólafélögum, fyrrverandi vinnufélögum, lesendum og öðrum velunnurum fyrr og síðar gleðilegra jóla.

Ég vona innilega að jólin verði ykkur góð og að þið getið slappað af með ykkar nánustu. Ég vona að þið hittið fólk sem þið hittið ekki nógu oft.

Ég óska ykkur þess að þið fáið þessa notalegu indælu tilfinningu sem ég fæ um jólin. Ég vona að þið borðið vel og mikið af góðum mat. Ég vona að þið sofið út við öll tækifæri. Ég vona að þið fáið góðar gjafir (en ef þið fáið ekki nógu góðar gjafir frá mér þá skulið þið ekki hika við að reyna að fá þeim skipt).

Ég óska ykkur líka gleðilegs árs og þakka það sem er að líða. Ég vona að við eigum góðar stundir saman á næsta ári og næstu árin.

Í stuttu máli þá óska ég þess að þið látið ykkur líða vel um jólin og reyndar bara alltaf.

Gleðileg jól!
Óli