Af hverju get ég ekki sofið? Bögg. Eitt það leiðinlegasta við að missa út Mikkavef er það að mér fannst ég þurfa að setja upp hlekki á bloggara en ég get það samt eiginlega ekki. Ef ég ætti að hafa hlekkjalistann fullkominn þá þyrfti ég að bæta við fullt af fólki í viðbót sem yrði að vissu leyti bara óhóflegt en síðan bara nenni ég því ekki. Ég nenni að uppfæra Google Reader til þess að beina mér á nýjar slóðir hjá fólki en ég nenni ekki að bæta við hlekkjum hérna inni. Ég er mikið að spá í að taka bara alla hlekkina út.