Cork er falleg borg

Í gær kláraði ég að lesa bókina The Burning of Cork. Hún fjallar um þegar breskir hermenn/lögreglumenn/varaliðsmenn kveiktu skipulega í miðborg Cork og rændu um leið verslanirnar sem þeir voru að brenna. Þetta var skipulagt og þeir létu þá vera sem voru hlynntir áframhaldandi sambandi Bretlands og Írlands. Þetta var í desember 1920. Skemmdirnar voru slíkar að slökkviliðsstjóri Dublin sagði þær umfangsmeiri en þær sem urðu í borginni hans í Páskauppreisninni 1916.

Það er voðalega erfitt að sjá þessa litlu borg í rústum. Hún er ákaflega falleg, jafnvel þar sem hún er í niðurníðslu. Bæði byggingar og einnig er ég endalaust heillaður af ánni Lee. Hún er ákaflega svört og lygn. Virðist fela margt. Þessir eiginleikar hennar verða líka til þess að hún sýnir margt.

2007_1002_210151aa.JPG
Ég held að þessi kirkja sé Holy Trinity. Er samt ekki viss. Þetta er suðurkvísl Lee.

Ég er hérna með nokkrar myndir sem ég tók í dag og í gær. Það væri hægt að bæta við myndum frá háskólasvæðinu fyrir ykkur sem ekki hafið séð hinar myndirnar mínar en ekki í kvöld. Ég hef engan þrífót og nota því hina og þessa fleti til að stilla myndavélinni á.

2007_1002_210349aa.JPG
Holy Trinity á ný.
2007_1002_210608aa.JPG
Sama brú og á fyrstu myndinni. Hún heitir Parliment Bridge. Þarna fer maður yfir á eyjuna þar sem miðborg Cork er.
2007_1003_200418aa.JPG
Þetta er Kent lestarstöðin sem er bókstafslega hinum megin við götuna frá heimili mínu.
2007_1003_201509aa.JPG
Þetta er brú heilags Patreks og strætið hans, aðalverslunargatan semsagt, í baksýn.
2007_1003_201630aa.JPG
Sama brú, sama stræti í baksýn. Þetta er norðurkvísl Lee.
2007_1003_210037aa.JPG
Brúin aftur en núna sjáum við hana sunnan frá.
2007_1003_210237aa.JPG
Brian Boru brúin lengst frá. Tekin á sama stað og næsta mynd á undan.
2007_1003_213922ae.JPG
Brú heilags Patreks aftur.
2007_1003_213928ae.JPG
Brian Boru brúin. Það rétt glittir í turn kirkju heilags Patreks.
2007_1003_213930ac.JPG
Brú heilags Patreks séð frá Brian Boru brúnni.
2007_1003_213930af.JPG
Aftur sama en frá lægra sjónarhorni.
2007_1003_213932ab.JPG
Keila allan sólarhringinn og síðan er þarna, að ég held, Trinity kirkja (önnur en Holy Trinity).
2007_1003_213934ab.JPG
Trinity séð af bílsþaki.
2007_1003_213938ag.JPG
Kirkja heilags Patreks mætti vera betur upplýst. Hún er btw. mjög nálægt heimili mínu.
2007_1003_213940ab.JPG
Þessi lestargöng eru hinum megin við götuna frá lestarstöðinni, rétt hjá heimili mínu, tvö hús á milli.