Írskur matur

Þá veit ég hvernig Írland lítur út eldsnemma á morgnanna. Dimmt.

Í gærkvöldi ákvað ég að láta eftir mér að prófa rétt sem ég hef séð á mörgum stöðum hérna í Cork, franskar með ost og hvítlauk. Þetta hljómar nefnilega eins og þetta gæti verið gott. Það er það bara ekki. Aðalvandinn er að franskarnar þeirra eru sverar og virðast ekki hafa verið steiktar heldur bleyttar upp úr olíu. Ekki jömmí.