Ég veit ekki hvort ég var búinn að minnast á skelfilegasta matarsið Íra. Það er að láta edik á franskar. Hvað er að þessu fólki? Edik? Það sem gerir þetta verra er að þó að þeir hafi stundum tómatsósu þá er hún almennt frekar vond, allavega ef hún er írsk. Matargerð er almennt ekki sterka hlið Íra.