Kennarastarfið í sögum

Það er fyndið að sjá muninn á sögunni sem kennarinn Ármann spinnur á bloggi sínu um kulnun og flökkusögunni hugljúfu sem borgarfulltrúinn Þorbjörg Helga límdi inn á sitt blogg.

Raunar byggir flökkusagan á raunverulegum atburðum ef við trúum Snopes, sem við gerum nú eiginlega alltaf. EnMark er orðinn að Magnúsi og dó ekki í Víetnam. Stærðfræðikennandi nunnan er líka orðinn nafnlaus og kennir ekki lengur ákveðna námsgrein.