Tónlistarmaðurinn Moby var nýlega að tjá sig um Kinks-lagið Lola. Hans túlkun er að það sé transfóbískt. Ég er ekki alveg sammála.
Það flækir málið töluvert að á þessum tíma hafði fólk ákaflega takmarkað orðfæri þegar það vildi tjá sig um þessi málefni. Það getur því verið erfitt að sjá hvort eitthvað hafi verið 1) meint á særandi hátt, 2) óvart særandi, 3) hlutlaust orðalag eða 4) kærleiksríkt.
Það getur vissulega verið stuðandi að hlusta á Lola með nútímaeyrum. Orðalagið virkar meiðandi. Allavega ef við erum á því að hér sé fjallað um manneskju sem skilgreinir sig sem konu. Sú túlkun er ekki sjálfgefin.
Í bókinni God Save The Kinks fjallar höfundurinn Rob Jovanovic um grein í Record Mirror frá 1970 og segir:
Ray [Davies] was questioned about whether Lola was a man or a woman, but he avoided giving a straight answer, concluding with ‘It really doesn’t matter what sex Lola is, I think she’s alright.’
Það er áhugavert að Ray kom sér undan því að nota hefðbundnar skilgreiningar á kyni. Í nútímanum erum við líka í þeirri hættu að hengja okkur í einfaldar skilgreiningar. Er Lola trans eða ekki? Hún gæti verið það. Lola gæti líka skilgreint sig sem samkynhneigðann karlmann sem stundum bregður sér í gervi konu. Kannski var Lola kynsegin? Möguleikarnir eru ótalmargir.
Þetta minnir auðvitað líka á lag Lou Reed Walk on the Wild Side. Í þeim texta er fjallað um fimm manneskjur. Þó við vitum nákvæmlega hvaða manneskjur er verið að fjalla um þá vitum samt ekki nákvæmlega þær hefðu skilgreint sig. Þeim skorti orðin sem við eigum núna.
Við gætum tekið línurnar sem fjalla um Holly sem rangkynjun en í mínum huga er þetta saga af því að koma út úr skápnum. Það mætti jafnvel kalla þetta endurfæðingu.
Holly came from Miami, F.L.A.
Hitch-hiked her way across the U.S.A.
Plucked her eyebrows on the way
Shaved her legs and then he was a she
Af þeim sem fjallað er um í Walk on the Wild Side vitum við mest um Holly Woodlawn. Henni er rétt lýst sem trans konu en hún notaði greinilega stundum orðalag um sjálfa sig sem ég myndi ekki nota um hana.
Annars er önnur tenging milli Walk on the Wild Side og Lola. Fólk hefur komið fram með þá tilgátu að Lola sé Candy Darling, trans kona sem Ray Davies hitti á sínum tíma. Það er sú Candy sem Lou Reed söng um. Samkvæmt Ray er þetta samt ekki raunin.
Hvorugt þessara laga er fullkomið og ekki höfundarnir heldur. Þau er þó heimild um að samfélögin sem þessir menn hrærðust í endurspegla ekki þá ímynduðu fortíð sem oft er talað um þar sem „karlmenn voru karlmenn og konur voru konur“ og engum hefði dottið í hug að flækja málin. Sú fortíð var aldrei til.
Umræðan um Lola hefur þó ljóstrað upp þeim óvæntu upplýsingum að bræðurnir Ray og Dave Davies tala stundum saman. Það er allavega jákvætt.
Annars má alltaf taka fram að ef það sem ég segi um trans fólk stangast á við það sem trans fólk segir sjálft eru allar líkur á að ég hafi rangt fyrir mér.
