Congratulations!
Your IQ score is 135
This number is based on a scientific formula that compares how many questions you answered correctly on the Classic IQ Test relative to others.
Your Intellectual Type is Visual Mathematician. This means you are gifted at spotting patterns ? both in pictures and in numbers. These talents combined with your overall high intelligence make you good at understanding the big picture, which is why people trust your instincts and turn to you for direction ? especially in the workplace.
Ægilega eru persónuleikar okkarÓlafíu líkir, eiginlega alveg eins. Gott að vita þetta með stærðfræðina þegar ég er á leið í aðferðafræðipróf.
Merkileg þessi greindarpróf sem hafa lítið breyst frá því að Binet var að móta þau. Ég stend mig ávallt mjög vel á svona prófum og var að hugsa um að skrifa um þau lærða ritgerð þegar ég var í KHÍ. Þessi próf voru gerð til að segja fyrir um hvernig fólki myndi ganga í skóla (hefðbundnum vestur-evrópskum skóla) og mælir ekkert nema það. Þau eru mjög góð til þess brúks en segja voðalega lítið um almenna greind. Nema menn telji að greind sé einungis sá hæfileiki sem gerir okkur að duglegum námsmönnum.
Hreinn: Ég hefði haldið að athugasemdin um líkindin milli mín og Ólafíu gæfu vísbendingu um hvaða álit ég hafði á þessu prófi. Í einum af þeim mörgu sálfræðiáföngum sem ég fór í í framhaldsskóla þá skrifaði ég ritgerð um gagnsleysi greindarprófa.
Ég vil ítreka að greindarpróf eru hvorki gagnslaus né óáræðanleg (þó deila megi um svona netpróf). Fólk verður bara að átta sig á því hvað þau mæla, þ.e. ekki greind heldur námsgetu í hefðbundnu bóklegu námi. Greindarpróf gefa t.d. bestu forspánna um gengi nemenda í bóklegu háskólanámi eins og Bókasafnsfræði.
Andy Warhol sagði að fegurð væri merki um greind. En það að líta greindarlega út þá merki um innri fegurð?
En Óli, trúir þú á IQ-próf??
Ekki ég…
Jájá, ég var bara að „hnykkja“ á þessu.
Þú ert allavega yfirmáta greindarlegur með þennan hugsanahatt á hausnum.