Nú eiga bloggarar að koma fram á Rás 2, það ætti að verða áhugavert, sérstaklega ef ég fæ að koma. Ef ég væri svalur þá myndi ég ekki taka fram að ég sé spenntur fyrir þessu en ég er náttúrulega ekki svalur. Ég er þegar byrjaður að spá í hvaða lög ég myndi spila og hvað ég myndi segja þannig að ég sé ekki hvernig Rás 2 getur litið framhjá mér.