Þetta þykir mér áhugaverð frétt. Samkvæmt þessu þá er safnkassetta með Queen fyrsta löglega útgáfan með rokkhljómsveit í Íran. Ástarlögunum var víst sleppt en af einhverjum ástæðum hleyptu þeir I Want to Break Free með. Líklega vita ráðamenn þarna ekki að það lag hefur oft höfðað til kúgaðra (sem sást kannski hvað best í „gervibrjóstaóeirðunum“ á Rock in Rio 1985). Annars er náttúrulega stórmerkilegt að Freddie komist í gegnum netið hjá þeim, maður hefði haldið að kynhneigðin ein og sér hefði komið í veg fyrir svona opinberan stimpil.
Þetta var víst falsfrétt