Að framboðsfundi loknum

Það var framboðsfundur áðan, voða gaman, nær allir í salnum fyrirfram ákveðnir. Þegar enginn bauð sig fram þegar beðið var um spurningar ákvað ég að láta vaða og spyrja hver væri formannsefni fylkingana. Það komu engin svör frá Vöskvu og Röku, töluðu um að slíkt væri ákveðið eftir kosningar. Nú er það þannig að þessar fylkingar stefna að hreinum meirihluta og þar með að því að vera einráð um það hver verður formaður þannig að mér þykir voðalega skrýtið að formannsefnið sé ekki kynnt. Formaðurinn verður andlit Stúdentaráðs næsta árið. Ég veit að margir sem kusu Vöku voru hissa og urðu jafnvel fyrir vonbrigðum þegar þeir komust að því hver yrði formaður í fyrra.

En Jarþrúður kom alltof vel útúr þessum fundi, sérstaklega varðandi samstarfsnefndina. Hún vitnaði í einhverja nafnlausa heimildamenn innan hinna námsmannahreyfinganna sem áttu að vera svo sammála henni, það stingst á við það sem við höfum heyrt frá þeim sem við töluðum við. Þar var talað um að sumt fólk mætti illa á fundi og væri illa undirbúið þegar það mætti.