Hressandi umræður í kjallaranum

Þetta voru frábærar umræður, vissulega súrar á köflum. Margir hápunktar en þó átti Bragi þann besta með inngangsorðum sínum. Ef fólk gæti búist við svona umræðum í gær þá hefði þurft Háskólabíó undir alla sem hefðu viljað fylgjast með.

Eftir umræðurnar þá fór ég á Bókhlöðuna að tæma húsið af áróðri, það hefur væntanlega litið fallega út þegar við vorum að hirða upp allan Röskvuáróðurinn þrælmerktir Háskólalistanum.

Kosningabaráttan búin, ég geri hana betur upp seinna en ég er sannfærður um að stúdentar væru mun betur settir ef fylkingarnar Vaka og Röskva myndu hverfa á morgun.